Dagur íslenskra tungu
26 Nóv 2019
Í tilefni af degi íslenskra tungu æfðu nemendur nokkur lög og voru með uppákomur fyrir samnemendur sína og fyrstubekkinga sem voru boðnir í heimsókn. Einnig fóru þrír elstu árgangarnir í heimsókn á Öldrunar- og hjúkrunarheimili Uppsali og sungu fyrir heimilisfólkið. Haldið var líka upp á afmælið hans Lubba.