news

Útivera

14 Mar 2018

Í Kærabæ er lögð áhersla á útiveru. Börn á öllum deildum fara út á hverjum degi. Það er aðeins í mjög miklum kulda eða slæmum veðrum sem allra yngstu börnin fara ekki út. Elstu deildarnar eru saman úti. Útiveran eflir styrk, byggir upp þol, þrótt og börnin takasta á við nýjar áskoranir. Hún styrkir börnin líkamlega og andlega. Börnin þurfa að takast á við ýmsar hindranir og leysa úr verkefnum á annan hátt en innan dyra. Íslenskt veðurfar er margbreytilegt og það getur haft margar birtingarmyndir yfir daginn.Dimmviðri, sól og jafnvel slydda allt sama daginn.

Í útiveru verða aðrar hugmyndir til, samstaða og sköpun taka á sig nýjar myndir. Efniviðurinn er annar, úrvinnsla daglegra athafna er önnur. Börnin reyna á annan hátt á rýmisgreind sína og grófhreyfingar ásamt því að efla orðaforðann. Í útiveru eflist og styrkist félagsþroskinn milli aldurshópa.