news

Malorvun

25 Mar 2024

Í Kærabæ er unnið markvisst með málörvun barna. Ýmist námsefni er notað til þess. T.d. Lærum og leikum með hljóðin og Lubbi ásamt mörgu öðru. Börnin fá kennsluna í gegnum leik þeirra.

Lubbi er á öllum deildum. Lubbi er íslenskur fjárhundur sem er duglegur að gelta og þá heyrist ,,voff - voff." Lubba langar mikið til að læra að tala og þá þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Góð samvinna og skilningur er við heimilin um það hversu mikilvægt er að lesa fyrir börnin á hverjum degi.

Börnin skiptast á að fara með Lubba heim um helgar og þar lendir hann í allskonar ævintýrum.

Börnin safna beinum í beinafjallið hans Lubba. Þau safna beinunum með því að skrifa þá sögu/bók niður á bein sem lesin var heima. Svo hengja þau beinið á fjallið.

Við finnum og sjáum það vel hér í Kærabæ hversu duglegir foreldrar / forráðamenn eru að lesa fyrir börnin sín. Einnig fara þau með foreldrum og starfsfólki reglulega í heimsókn á bókasafnið á Fáskrúðsfirði.